| Frá október 2010 hefur SÍM haft gestaíbúðir í Berlín á leigu fyrir félagsmenn SÍM og aðra listamenn. Hugmyndin var að íslenskir myndlistamenn geti dvalið erlendis og unnið að list sinni á sömu kjörum og erlendir listamenn nýta húsnæði SÍM í Reykjavík. Íbúðirnar eru 4 talsins og má sjá myndir og nánari lýsingar á hverri íbúð fyrir sig hér til vinstri. Íbúðin er staðsett í Neue Bahnhofstrasse 27 í Friedrichshain í austurhluta Berlínar, póstnúmer D-10245 Berlin. Aðeins 5 mínútna gangur er frá Ostkreuz lestarstöðinni að íbúðinni, en S-9 fer beint frá flugvellinum Berlín Schönefeld (SXF) til Ostkreuz. Vélar Iceland Express lenda einmitt á Schönefeld og hægt er að bóka ódýrt flug til Berlínar í gegn um skrifstofu SÍM SIM hefur náð samkomulagi við Iceland Express um sérstök fargjöld til þeirra sem eru að fara til Berlínar í Gestavinnustofur SIM og til Kaupmannahafnar. Tímabilið frá og með janúar til og með apríl og svo aftur frá september til desember er fargjaldið fram og til baka kr. 40.000.- með sköttum og öllum gjöldum. Tímabilið frá og með maí til og með ágúst er fargjaldið kr. 60.000.- , með öllum gjöldum. Hafa þarf samband við skrifstofu SÍM ef bóka á miða á þessum kjörum. Einnig bókið þið íbúðina á skrifstofu SÍM sim@sim.is 
Verðlag á mat og drykk er almennt hagstæðara í þessum hluta Berlínar. Í hverfinu er fjöldi veitinga- og kaffihúsa og í 10 mínútna radíus frá íbúðinni. Í austurhluta Berlínar er verðlagning á veitingastöðum mjög hagstæð. Hér til vinstri má finna kort yfir veitingastaði og matvöruverslanir sem eru sérvaldir af þeim sem hafa nú þegar dvalið á gestavinnustofu SÍM og mælt sérstaklega með. Á tímabilinu frá og með janúar til og með apríl og svo aftur frá september til desember er fargjaldið fram og til baka kr. 40.000.- með sköttum og öllum gjöldum. |