Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Vinnustofur SÍM

SÍM leigir út vinnustofur til félagsmanna í húsnæði við Seljaveg 32 í Reykjavík, á Korpúlfsstöðum og Lyngási í Garðabæ, en vinnustofurnar eru hátt í 150 talsins. Einnig er til leigu verkefnatengd vinnustofa á Korpúlfsstöðum í skammtímaleigu.

Vinnustofurnar eru alla jafna fullnýttar, en félagsmenn geta farið á biðlista og ganga þá fyrir ef vinnustofa losnar.

Hér að neðan má sjá nánar um vinnustofurnar.


NÝJAR VINNUSTOFUR Á NÝLENDUGÖTU

SÍM hefur tekið á leigu húsnæði við Nýlendugötu 14, 101 R. fyrir vinnustofur félagsmanna.
Á hverri hæð er gert ráð fyrir 4 – 8 vinnustofum ( sjá teikningar ), hvert rými verður frá  9 m2 upp í 42 m2.
Vonandi henta þessar stærðir sem flestum.

 

Hér að neðan má sjá fyrstu tillögu að skiptingu hverrar hæðar niður í vinnustofur. Ef þið hafið áhuga á að sækja um vinnustofu í húsinu getið þið gert það strax, en umsóknarfrestur er til 11. maí n.k. Umsóknareyðublað er fyrir neðan teikningarnar. Vinsamlegast skilið umsóknum rafrænt í tölvupóst á sim@sim.is


Vinsamlega tilgreinið númer þeirrar vinnustofu sem ykkur lýst best á í umsókninni.

 

 

 

 


2. hæð


 

 

 

 

 

 

 

 

 

3. hæð


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4. hæð

 

 

 

 

 

 



VERKEFNATENGD VINNUSTOFA Í SKAMMTÍMALEIGU

 

Stjórn Rekstrarfélags Sjónlistamiðstöðvarinnar á Korpúlfsstöðum hefur
ákveðið að bjóða eina af vinnustofunum á Korpúlfsstöðum til leigu sem
verkefnatengda vinnustofu fyrir myndlistarmenn og hönnuði.
Mögulegur leigutími verður á bilinu 1-3 mánuðir. Um er að ræða mjög
góða 53 m2 vinnustofu með vaski á jarðhæð í miðrými hússins. Leiguverð
er 500 kr/m2 á mánuði.

Umsóknum ber að skila til skrifstofu SÍM


VINNUSTOFUR SÍM Á SELJUVEGI 32 REYKJAVÍK

 

Vinnustofur SÍM á Seljavegi eru leigðar út til 3 ára í senn, en seinasta úthlutun fór fram í apríl 2009.
Húsnæðið er alls um 1.700 m2 á fjórum hæðum og skiptist í 42 vinustofur auk sameiginlegs rýmis.
Vinnustofurnar eru frá 8 m2 og upp í 57 m2 að stærð. Leigan er kr.850.-  fyrir hvern m2 á mánuði auk greiðslu í hússjóð kr. 500.- á mánuði. Leiguna skal greiða mánaðarlega og eigi síðar en á eindaga.

Umsóknum skal fylgja ítarlegar upplýsingar um feril og fyrirliggjandi verkefni og hvernig umsækjandi hyggst nota vinnustofuna.

Núverandi leigjendur í húsinu geta sótt um framlengingu á leigusamningi um sína vinnustofu næstu 3 árin. Eins og áður er það algert skilyrði fyrir vinnustofunni og fyrir framlenginu á húsaleigusamningi að hafa staðið í skilum og greitt húsaleiguna á réttum tíma.

Einungis skuldlausir félagar innan SÍM koma til greina við úthlutun.
Seljavegur 1. hæð 1.hæð

Seljavegur 2. hæð2.hæð

Seljavegur 3. hæð3.hæð


VINNUSTOFUR Í SJÓNLISTAMIÐSTÖÐINNI Á KORPÚLFSSTÖÐUM
Korpúlfsstaðir

 

Vinnustofur fyrir myndlistarmenn og hönnuði í Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum eru lausar til umsóknar fyrir félagsmenn SÍM og félagsmenn aðildarfélaga Hönnunarmiðstöðvar íslands, það eru félagsmenn í Arkitektafélagi Íslands, Fatahönnunarfélagi Íslands, Félagi húsgagna- og innanhúsarkitekta, Félagi íslenskra gullsmiða, Félagi íslenskra landslagsarkitekta, Félagi Íslenskra teiknara og Félagi vöru og iðnhönnuða.

Vinnustofurnar eru frá 10 m2 upp í 76 m2 að stærð, fleiri en einn geta sameinast um leigu á stærri vinnustofunum. Húsaleigan er kr. 700.- m2 á mánuði fyrir félagsmenn SÍM og kr. 800.- m2 á mánuði fyrir félagsmenn aðildarfélaga Hönnunarmiðstöðvarinnar (ath að húsaleigan fylgir vísitölu neysluverðs), auk greiðslu í hússjóð. Innifalið í leigunni er rafmagn og hiti, nema ef um orkufrek rafmagnstæki er að ræða, þá þarf að greiða aukalega. Inni í stærri vinnustofunum eru vaskar. Góð sameiginleg aðstaða er í húsinu. Verið er að koma upp leirverkstæði og textílverkstæði sem leigutakar hafa aðgang að gegn gjaldi. Húsaleiguna skal greiða 1. hvers mánaðar og fyrirfram.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um feril og fyrirliggjandi verkefni og hvernig umsækjandi hyggst nota vinnustofuna.
Vinnustofurnar eru leigðar til 3ja ára í senn. Úthlutunarnefnd á vegum SÍM og Hönnunarmiðstöðvar Íslands mun fara yfir umsóknir og úthluta vinnustofunum.

Leigutímabilið er frá 1. april 2009 til 31. mars 2012. Einungis fullgildir félagar í ofangreindum félögum koma til greina við úthlutun.

Umsóknareyðublað ásamt upplýsingum um staðsetningu og stærð hverrar vinnustofu er að finna á heimasíðu SÍM og heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Staðsetning og stærð hverrar vinnustofu:

Hæðnr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2nr./ m2
Kjallari101/ 26102/ 31103/ 32104/ 27105/ 19
1. hæð203/ 46204/ 41205/ 52206/ 54207/ 45207B/ 39208/ 39209/ 50210/ 46211/ 76
1. hæð221/ 25222/ 27223/ 24A/ 11B/ 11C/ 10227/ 24228/ 22229/ 20230/ 25231/ 19232/ 20
2. hæð301/ 17302/ 15303/ 15304/ 19
3. hæð401/ 60
Leirverkstæði 1.hæð201/46202/30
Projectrými233/ 53
Skóli234/ 77

Korpúlfsstaðir kjallari Korpúlfsstaðir 1. hæð
Kjallari                                     1. hæð                                                2. hæð


VINNUSTOFUR SÍM Í LYNGÁSI GARÐABÆ
Lyngás

 

Nýtt húsnæði fyrir vinnustofur félagsmanna að Lyngás 7, Garðabæ var tekið í notkun í byrjun maí 2010. Þar er einnig til húsa Hönnunarsafn Íslands, sem flytur fljótlega á Garðatorg í Garðabæ. Um er að ræða efri hæð hússins. Húsnæðið hentar mjög vel fyrir vinnustofur listamanna og býður upp á mikla möguleika. Rýmin eru opin og björt og
hátt er til lofts, einnig er sameignin góð.
Lyngás 7 er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og eru næg bílastæði fyrir framan húsið.

Leiguverðið verður kr. 875.- pr. m2 á mánuði, auk greiðslu í hússjóð ( kr. 500.-)
Innifalið í leigunni er rafmagn og hiti, nettenging og aðgangur að góðri sameign.

Vinnustofurnar eru frá ca. 12 m2 upp í ca. 48 m2 að stærð. Hvert rými hefur númer og er hægt að sjá stærð hvers og eins hér að neðan.

 

Lyngás